12.04.2009 14:25:34 / steinunn
Held að þetta sé í fyrsta skipti í nokkur ár sem páskarnir eru haldnir heima, við erum alltaf að keppa á þessum tíma svo allavega tveimur seinustu páskum hef ég varið í Rúmeníu, man ekki árið þar á undan. Er búin að japla á lakkríspáskaeggi og fékk málsháttinn "Það er grannt vit að gangast fyrir lit" ætli það megi ekki túlka á margan hátt... nema að það þýði að maður sé grunnhygginn ef maður á uppáhalds lit....eða að maður sé heimskur ef maður er alltaf í ljósum! haha.... eða að það er rangt að gera upp á milli manna eftir húðlit....jájá ég á nóg af hugmyndum.
Fór í páskagöngu í morgun í Öskjuhlíð og hitti þar kanínu á hoppi, hlýtur að hafa verið páskakanínan! Rosa fínt að labba í öskjuhlíðina, ennþá betra að hjóla en þar sem hjólinu var stolið gerist það nú ekki á næstunni. Sakna hjólsins míns gríðarlega, notaði það mjög mikið og langar að nota það enn meira núna fyrst að það er ekki til staðar.
Eldaði voða fínt læri á föstudag, það tókst mjög vel sem og allt annað
Svo var afmæli hjá Ölmu á fimmtudeginum og þar var líka borðað ógurlega. Fullt af mat á páskunum
Jæja verð að halda áfram að skrifa, styttist í skilin!!
Gleðilega páska
»
07.02.2009 13:47:05 / steinunn
Nei nei hér sit ég í borginni meðan hinar íshokkíkonur landsins eru allar að spila hokkí fyrir norðan. Ekkert svo svekkjandi nei nei....er ennþá svo slöpp í maganum og get ekki borðað án þess að verða mjög illt þannig ég ákvað að fara ekki- veit alveg að það var rétt ákvörðun því ég hefði í fyrsta lagi ekki meikað bílferðina og í öðru lagi ekkert getað staðið á ís en það er mjög pirrandi að sitja hér.
En það gengur ágætlega að prjóna í staðinn, er aðeins að komast áfram í munstrinu á kjólnum. Svo er ég búin að horfa á nokkrar myndir...glatað, nenni ekki að blogga meir þetta er svo glatað eikkva...síja
»
04.02.2009 22:11:47 / steinunn
er nú ekki búin að vera duglegasti bloggarinn, bara svo margt að gera- en þannig er það líka best. Er veik heima í augnablikinu en læt það nú ekki stoppa mig lengi- hef ákveðið að þetta er bara svona sólarhringsveira, allavega mun ég ekki láta hana stoppa mig lengur. En mikið rosalega var mér illt í maganum í nótt- var viss um að Brynja væri farin uppá sjúkrahús að eiga og þetta væru samúðarsamdráttaverkir í mér. En það er ekkert barn komið svo þannig var það nú ekki.
Skellti mér norður á þorrablót seinustu helgi og það var alveg frábær skemmtun. Álfheiður fór með okkur og héldum við þannig upp á tíu ára afmæli þess að hún fór í fyrsta skipti á þorrablót, nei eða bíddu 12 ára afmæli? æji man það ekki....en það var allavega dansað allt til loka og vorum við með þeim seinustu heim.
Síðan hittumst við allar vinkonurnar í saumaklúbbi og það er nú ekki oft sem við náum að vera allar saman en það tókst og það var sko mikið hlegið og rifjað upp!
Næstu helgi verður líka eytt fyrir norðan en þar verður landsliðscamp þó svo að ekkert mót verði fyrir okkur þetta árið- en það er verið að vinna í því að fá einhverja leiki. Reyndar meiddi ég mig á æfingu í gær og er veik núna þannig maður verður nú ekkert í besta ásigkomulagi en maður verður nú samt að sýna sig og sjá aðra!
»
18.01.2009 18:33:00 / steinunn
Myndin var alveg mögnuð- mæli með henni fyrir alla. Það er þó ekki nauðsynlegt að sjá hana í bíói en það er gaman að sjá hana svo maður geti verið með í umræðunni. Allir þeir sem vinna með börn ættu að sjá hana einhvern tímann.
Það var alveg magnað innflutningspartí hér á föstudag, Eva flutti út og Tóta flutti inn.Við höfðum því stelpupartí og buðum vinkonum okkar og höfðum kokteila og svoleis stelpulegt. Reyndar komu tveir strákar en þeir stoppuðu þó mjög stutt og leist ekkert rosalega á þetta stelpudæmi- vildu sko ekki rör í mojitoinn haha!! Það var mikið stuð hjá okkur og við fórum svo út að dansa. Ég var með já sææll! á heilanum allt kvöldið og sagði endalausa léléga brandara- svo gott að vera fyndinn og dagvaktar brandarar verða bara ekki þreyttir!
Laugardegi var eytt í chill og videogláp og í dag var íbúðin skúruð hátt og lágt, næstum því öll glösin voru skítug held ég.
»
10.01.2009 14:52:53 / steinunn
Er alveg að komast í munstrið á kjólnum, er að prjóna mér kjól og er alveg megaspennt að klára hann svo ég geti byrjað að prjóna meira
Það er svo gaman að prjóna sér eitthvað- verðið að prófa það ef þið eruð ekki inn í þessu.
Í dag er ég búin að elda súpu fyrir 12 skáta, skutlast í grafarvog og ná í partí og co. og versla efni fyrir mömmu sem er orðin saumakona og farin að selja flíkur- ég er sérlegur umboðsmaður þannig ef ykkur langar í töff kjól þá er mamma mín snillingur. Ættuð líka að sjá kápuna sem hún saumaði handa mér í jólagjöf- úber flott og sko miklu flottari en í búðunum!!
Í gær náðum við Hrönn í Dr. Strúnu á völlinn, hún vissi ekki að við kæmum og var mjög hissa og glöð. Við vorum með skilti, kórónu handa henni og blómakrans og kokteil í glasi! Þetta var mjög skemmtilegt og ég veit hreinlega ekki hver skemmti sér betur, ég og Hrönn eða Kristrún. Við náðum allavega að koma henni verulega á óvart
Í kvöld ætlum við svo öll að borða saman og spila, rosa næs.
Á mánudaginn byrjar skólinn og það er vel. Erum byrjaðar á heimildavinnu í lokaverkefninu og þetta lítur vel út
Jæja kjóllinn prjónar sig ekki sjálfur! Later...
»
02.01.2009 12:54:42 / steinunn
Eftir ársuppgjör hefur komið í ljós mikill gróði ólíkt því sem er hjá mörgum fyrirtækjum. Ástæðan er líklegast góð stjórnun og engir starfsmenn.
Ferðalög hafa einkennt árið eins og áður enda finnst mér skemmtilegast af öllu að ferðast
Það má líka eiginlega segja að árið hafi skipst í þrennt hjá mér HM, Ástralía og eftir Ástralíu
hehe
Janúar 2008- Kvaddi sorgmædd Malmö og vini mína og kom heim frá Svíþjóð. Fékk David vin minn í heimsókn og við skoðuðum íslenska náttúru og fleira skemmtilegt. Byrjaði líka á átaki fyrir HM í í shokkí.
Febrúar-apríl. Þessir mánuðir einkenndust af líkamsrækt, fjáröflun fyrir HM, verknámi og smá skóla. Í febrúar var líka tekin sú ákvörðun að fara til Ástralíu að spila hokkí um sumarið. HM byrjaði svo 22. mars og ef einhver skyldi hafa gleymt því þá unnum við alla leikina og tókum gullið með heim!
Ohh hvað þetta eru góðar minningar. Sofa, borða, hokkí, borða, hvíld, fundur, sofa. Þetta var toppurinn! Skoraði mitt fyrsta landsliðsmark en sko alls ekki seinasta!
Apríl- undirbúningur hófst fyrir næsta ferðalag sem var til London-Hong Kong- Sydney. 29 var svo flogið af stað á vit ævintýranna.
Maí-Júlí. Ætti að vera sumar en var vetur- í Manly, Ástralíu. Það sem er þó vetur þar er 25° hiti og sól og allt niður í 15°....ekki mjög kalt fyrir Íslendinga
spilaði hokkí, lærði að keyra í vinstri umferð, lá á ströndinni, surfaði, dansaði brasilíska dansa, fórum til Newcastle og urðum Ástralíumeistarar, kepptum í Canberra, heimsóttum Nathan og Ellu í Melbourne, sá Ramsay street, borðaði kengúru, fékk verkamannavinnu, keyrðum á blæjubíl og bara eilíf hamingja
Júlí- Í lok júlí héldum við af stað heim á leið í gegnum Taiwan og flugum til Los Angeles. Ólýsanlegt að vera þar og sáum svo margt furðulegt og fyndið.
Ágúst- Komum til Kanada og vorum hjá foreldrum Söruh í viku. Yndislegt að vera í hokkílandi og langar klárlega aftur þangað. Kom svo loks heim 8 ágúst sama dag og Hanna vinkona eignaðist frumburðinn. Var í sveitinni þennan mánuð að vinna í leikskólanum.
September- Desember. Reykjavík og skólinn, íslenskt hokkí á ný, gerði samning við Kópavogsbæ, sat í strætó í ofmarga tíma, tók slátur....
Það sem stendur upp úr á árinu er klárlega HM gullið- aldrei neitt sem toppar það held ég. Ástralía er klárlega númer tvö, og allt ferðalagið í kringum ferðina. Ótrúlega mikið sem ég hef gert á árinu svona ef maður pælir í því.
Nýja árið verður spennandi, útskrift framundan og ný vinna. Allt annað er óvíst og gaman að sjá hvað gerist. Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og takk fyrir það gamla

»
18.12.2008 23:40:18 / steinunn
er svo gott að vera. Það er sérstaklega skemmtilegt að fylgjast með kettinum, það sem hann getur dundað sér við að leika í pappakassa- alveg ótrúlegt. Merkilegt það. Er öll út í klóri og bitum en það er bara of skemmtilegt að fíflast með hann. Þegar hann setur kryppuna upp og labbar svona til hliðar- ægilega æstur, það er held ég fyndnast...
Jólaundirbúningur gengur vel fyrir sig og við erum búin að skreyta jólatréð- höfum aldrei verið svona snemma í því áður þannig verður enn meiri afslöppun fyrir jól. Svo verður laufabrauðsgerð á laugardaginn þannig nóg að gera
elska jólaundirbúning! Er svo búin að fara á bókasafn og taka mér bækur og kaupa garn til að prjóna mér kjól. Þessi jól verða yndi...
»
14.12.2008 22:59:03 / steinunn
Skemmtileg helgi, varði henni að mestu í rúminu að njóta þess að sofa lengi og slóra á netinu og engar áhyggjur af lærdómi eða öðru. Yndislegt svona eftir prófatörn. Fór líka á próflokadjamm upp í skóla og svo á tónleika í gær með FM Belfast. Hljómsveit sem ég hef heyrt í tvisvar og var svona dúndur góð. Myndi klárlega fara aftur á tónleika og þarf eiginlega að eignast nokkur lög með þeim...
Svo er bara að koma að jólafríinu, fannst alltaf eins og ég ætti fleira daga eftir hér í borginn en það er víst ekki á morgun heldur hinn sem ég flýg og það nánast beint eftir vinnu þannig að ég þarf að vera klár á morgun....það verður svolítið mikið að gera þá á morgun.... á eftir að klára flestar gjafir og pakka og laga pínu til hérna- allt náttla setið á hakanum í prófunum...
»
07.12.2008 20:12:39 / steinunn
Hokkíhelgi að baki en einnig mikið af aðferðarfræði. Er orðin gegnsýrð af lærdómi og eila bara komin í smá galsa- hvað er til dæmis fyndið við greiningarferli Schmidt?? Það er nákvæmlega ekki neitt en ég gat bara ekki hætt að hlægja... klukkan er núna átta og ég var komin um níu í morgun...
Fór samt í magnaðan hádegismat hjá Göggu og hitti Álfheiði sem var að koma heim- jei gaman
það var líka gaman að hitta hina en bara styttra síðan ég sá þau
Ætla ekkert að læra á morgun eftir prófið, bara hvíla mig- get ekki beðið...
En já það var hokkí. Á föstudag töpuðum við 4-3 í þvílíkt spennandi leik. Ég skoraði tvö mörk annað eftir magnaða sendingu frá Flosrúnu. En SA komst yfir þegar 3 mín voru eftir og það var þvílík spenna í lokin... Á laugardag var svo enn meira spennandi leikur ef það er hægt... við komumst í 2-0 og leikurinn endaði 2-1. Ég skoraði eitt mark þegar ég stalst inn á af bekknum og svo reyndar klúðraði ég víti- en það fer bara í reynslupakkann.
Jæja meiri aðferðarfræði
»
04.12.2008 23:34:49 / steinunn
Já sagði nú eiginlega allt í fyrisögninni. En ég er búin með tvö og á tvö eftir. Er búin með tónleikana frábæru- fengum mikið lófaklapp fyrir okkar kroppaklapp

Á morgun er hokkíleikur, ohh hvað það verður gaman. Finnst svo gaman í hokkíi! Svo er annar leikur á laugardaginn og þá kemur líka Álfheiður heim!! Hef ekki séð hana síðan á jólunum í fyrra- næstum því eitt ár! Voðalega langt síðan...
»
Síður:
1 2 3 ...
27